Horfumst ekki í augu umfram allt horfumst ekki í augu Ég skal mæna í suður og þú í norður, ég í vestur og þú austur, þú á gólfið og ég á vegginn hinum megin Horfum á hvítan vegg og finnum snertinguna þú með höndum ég með klofi og svo ég með höndum og þú með […]
Höfundur: Sigurlín Bjarney Gísladóttir
Steypa
Einu sinni var þjóð sem hafði mikið dálæti á steypu, steinsteypu. Þau reistu sér hús og blokkir og byggingar og létu meira að segja steypa yfir garðana sína: „Því þá losnum við hratt og örugglega við þessi grös sem spretta svo hratt, að ekki sé talað um hin eilífu smáblóm sem laða að sér skordýr […]
Tungusól og nokkrir dagar í maí
Tvö ljóð úr bókinni Tungusól og nokkrir dagar í maí eftir Sigurlínu Bjarneyju Gísladóttur. Samtímis Af garðbekknum horfi ég upp eftir húsinu og upp himinninn fikrar sig flugvél og dregur á eftir sér hvíta línu og á sama tíma er svitadropi sem sprettur fram á bringunni á mér og rennur niður á milli brjóstanna í […]
Tsunami
Ellefu syngjandi varir
tuttugu og tveir
dansandi fætur
hundrað og tíu potandi
puttar
Samtakamáttur eftir Sigurlín Bjarneyju Gísladóttur
Þau eru í fullu starfi við að vinna vinnuna sína og vona það eitt að hún gangi ekki að þeim dauðum. Þau eru í afplánun á skilorði hjá yfirmanninum og stimpilklukkunni. Híma, hanga finna sig ekki. Róta, plokka, pikka, stinga grafa sig í sundur. Þau eru ekki hér. Loka sig af. Steikja fisk kveikja […]