Legg annan arminn í brennsluofninn rétt til að finna hvernig tvístrast mánabein öln og sveif tel bláa dropa oní hvarma tvo hvorum megin og greiði lyfsalanum kyngi blekinu dreg hæl eftir blásvörtum sandinum þar til skammstöfunarinnar verður vart greiði hár hlýrrar hnátu með köldum berum fingrum og finnst ég ekki lengur bágur þræll
Höfundur: Sigurbjörg Þrastardóttir
Hjarta mitt hefur legið eins og lifur …
Í steinhúsinu á móti skólanum bjó skáldkonan. Hún bar skokkkrem á svera kálfana eftir langan dag í íshúsinu, dottaði í sjónvarpssokkunum, hvítt suð í tækinu, uppstoppuð langvía á skenknum. Hún þoldi illa snark í ofni, bank á dyr, en lék rödd afa síns reglulega af gömlu segulbandi og komst við í hvert sinn. Sumir trúðu […]
Skáldskapur vikunnar: Idjót eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur
Það er idjót sem eltir mig alla daga, það geiflar sig og grípur hnífapör á lofti klifrar hljóðlega í gardínum, enginn sér það nema ég og tafarlaust, til að forðast misskilning: ég elska idjótið mitt hata það samt þegar það sefur eða hermir eftir mér af rótblindri hæðni, slíkt gerist (oft), en hann er […]