Veruleiki

Úr Orðspor daganna (1983)

Markmiðin nálgast
minnka
leysast upp og hverfa
niðrum eldhúsvaskinn
líf mitt
verður stöðugt þokukenndara
í reglubundinni einsemd sinni:
endurteknar hugsanir
í hægum hringdansi
kringum einiberjarunn

Vinkonurnar sem maður hittir
óvænt
í fiskbúðum veruleikans: ó
ég ætlaði varla að þekkja þig, ó
það er svo langt síðan …
(miðaldra kellingar
að kaupa í soðið)

einhverstaðar
handan við þessa plasthimnu:
eitthvað til að halda sér í
eitthvað til að elska?

 

Ingibjörg Haraldsdóttir, fædd 1942, er látin. Ingibjörg var eitt af allra mestu skáldum og þýðendum Íslendinga á 20. öld. Starafugl sendir aðstandendum hennar sínar innilegustu samúðarkveðjur.