„Hin svokölluðu skáld“ endurtaka gjörning „Listaskáldanna vondu“

Laugardaginn 12. apríl næstkomandi stendur hópur skálda fyrir ljóðadagskrá í stóra salnum í Háskólabíó – þeim sama og „Listaskáldin vondu“ fylltu hér um árið. Yfirskriftin í þetta skiptið er „Hin svokölluðu skáld“ – sem eiga það öll sameiginlegt að yrkja háttbundin nútímaljóð. Sú nýbreytni er einnig höfð á uppákomunni að rukkaður verður aðgangseyrir, sem er næsta fátítt á Íslandi, 1.900 krónur og hefst miðasala í dag á vefsíðunni midi.is. Í tilkynningu segir að níu skáld af „báðum kynjum og ýmsum aldri„ flytji eigin ljóð og því megi búast við „fjölbreyttum og krassandi kveðskap.“ Skáldin sem fram koma eru:

Davíð Þór Jónsson
Sigrún Haraldsdóttir
Valdimar Tómasson
Teresa Dröfn Njarðvík
Aðalsteinn Svanur Sigfússon
Snæbjörn Ragnarsson
Örlygur Benediktsson
Eva Hauksdóttir
Bjarki Karlsson

Kynnir verður Sigurður Karlsson, leikari og þýðandi, sem einnig kynnti „Listaskáldin vondu“ í þessum sama sal árið 1976. Dagskráin hefst klukkan 2 eftir hádegi.