Þóra

Framfarir


Konur verða ekki lengur gjafvaxta
heldur hagvaxta

þær fegra sig, mennta sig, sanna sig
taka í gegn, taka pláss, taka völdin
en halda þó samtímis í mýktina

gefa af sér, gefa börnunum, gefa blóð
gefa allt
að kvöldi

situr eftir örmagna, hagvaxta kona
með nagandi samviskubit
yfir að hafa ekki gert nóg

Ljóð úr væntanlegri ljóðabók, Nú sker ég netin mín, frá ljóðakollektívinu Svikaskáld