Kvöld


Þröskuldur hússins er þjöl

drengurinn yddir tennur með þjöl
ylfingstennur.

Ryð þaksins sáldrast látlaust
ryð þaksins litar hörund hans
mjúkt hörund hans

sáldrast látlaust

hvenær er þetta eina þak búið?
Hvenær hættir þakið að sáldrast

Af þröskuldinum horfir hann
á himin stjarnanna
stjarnanna —
drengurinn.

Einhver hlær úti
opnum hlátri — berar vargstennur
hlær.

Ljóð úr Þröskuldur hússins er þjöl eftir Arnfríði sem kom út árið 1958. Hún kemur í dag út aftur á vegum Unu útgáfuhúss ásamt öðrum skrifum Arnfríðar.