RSÍ: Tveir í formann og tveir í meðstjórnanda

Framboðsfrestur vegna stjórnarkjörs í Rithöfundasambandi Íslands 2014 rann út 21. mars síðastliðinn. Tveir buðu sig fram í formann, þau Kristín Helga Gunnarsdóttir og Sindri Freysson, og tveir buðu sig fram til meðstjórnanda, þeir Hallgrímur Helgason og Hermann Stefánsson. Kjörgögn verða send meðlimum sambandsins en kosið verður á aðalfundi þann 8. maí næstkomandi. Varaformaður telst sjálfkjörinn Jón Kalman Stefánsson og hið sama gildir um varamann, Gauta Kristmansson, enda barst ekkert mótframboð.