Á meðan


Legg annan arminn
í brennsluofninn rétt til
að finna hvernig tvístrast
mánabein öln og
sveif
tel bláa dropa oní hvarma tvo
hvorum megin og greiði
lyfsalanum
kyngi blekinu
dreg hæl eftir blásvörtum sandinum þar
til skammstöfunarinnar verður vart
greiði
hár hlýrrar hnátu með
köldum berum fingrum og
finnst ég ekki lengur
bágur þræll