„Talsvert hefur verið rætt og ritað undanfarið um hversu skarðan hlut konur bera frá borði í kvikmyndaheiminum. Nú síðast vakti Jane Campion athygli á þessu í Cannes þar sem hún fór fyrir dómnefndinni.
Samkvæmt nýrri könnun leikstýrðu, skrifuðu og framleiddu konur aðeins 26% sjálfstæðra kvikmynda, í fullri lengd, sem sýndar voru á kvikmyndahátíðum á síðasta ári. Þessi tala er óbreytt frá sambærilegri könnun árin 2011-2012. Þá komu konur aðeins að 16% þeirra kvikmynda sem skiluðu mestum gróða í Bandaríkjunum 2013.“
via Tíu góðar myndir eftir konur á Netflix | Kvikmyndavefurinn Svarthöfði.