Útlagar yfirtaka Gamla bíó

Útlagar hafa löngum verið á Íslandi og eru jafnvel enn. Þekktustu útlagarnir eru án efa Gísli Súrsson og Fjalla-Eyvindur. Kómedíuleikhúsið hefur samið leikrit um báða þessa kappa sem hafa notið mikilla vinsælda. Nú verða báðir leikirnir sýndir saman og því boðið uppá sannkallaða útlaga leikhústvennu. Sýnt verður í hinu stórglæsilega Gamla bíói enda dugar ekkert minna fyrir svona mikla kappa og þá Gísla Súra og Fjalla-Eyvind. Sýningar hefjast í lok maí og standa fram í miðjan júní.

Fyrsta sýning verður á Uppstigningardag fimmtudaginn 29. maí kl.20 í Gamla bíó.

Kveldið hefst með sýningu á Gísla Súrssyni. Leikurinn sá var frumsýndur árið 2005 og hefur verið sýndur um 300 sinnum bæði hér heima og erlendis. Gísli Súrsson er því eitt mest sýnda leikrit þjóðarinnar. Leikurinn segir af örlögum Gísla Súrssonar og fjölskyldu hans sem taka land í Haukadal í Dýrafirði. Gengur þeim allt í haginn í fyrstu og gjörast brátt hinir mestu höfðingjar. En skjótt skipast veður í lofti og brátt er farið að fella mann og annan. Þetta endar loks með því að Gísli er útlægur ger. Eftir hlé tekur Fjalla-Eyvindur sviðið yfir. Leikurinn var frumsýndur í lok síðasta árs og hefur þegar verið sýndur hátt í 30 sinnum um land allt. Fjalla-Eyvindur er án efa frægasti útilegumaður allra tíma hér á landi. Enda var kappinn sá í útlegð í eina fjóra áratugi. Hann var í raun einfaldur sveitapiltur en þótti samt strax í föðurgarði öðruvísi en jafnaaldrar sínir. Hann var mikill hæfileikamaður smiður góður, fimur mjög og meira að segja læs. Einnig þótti hann eigi ómyndarlegur. Samt varð hann að halda á fjöll eftir að hafa verið grunaður um þjófnað. Já, aðeins grunaður aldrei var neitt sannað. Svo kynnist hann henni Höllu sinni. Hér er þessi þekkta saga túlkuð á nýjan, óvæntan og líklega soldið kómískan máta.

Leikari í báðum sýningunum er Elfar Logi Hannesson. Gaman er að geta þess að Gísli Súrsson verður einnig sýndur á ensku í Gamla bíói. Sýningar hefjast í lok maí og standa fram í miðjan júní. Fyrsta sýning á ensku verður miðvikudaginn 28. maí kl.20. Miðasala á allar er á midi.is

Fréttatilkynning frá Kómedíuleikhúsinu.