Skyndilegt umsátur sem skiptir ekki nokkru máli eftir Evu Rún Snorradóttur

 

Á gatnamótum stöndum við í hnapp,
áhugalausir ferðamenn í skipulagðri göngu
um sögulega staði þrælahalds í borginni.

Sitjandi á ísskápum
í gardínulausum gluggum
báðum megin okkar
svo langt sem augun eygja,
sviplausar konur
af asískum uppruna.

Áfram gakk.
Híf op.
Allir mínir menn.

Leiðtogi göngunnar
rekur okkur áfram,
það þarf að skoða gamalt hús
lesa smáletrið á skilti
áhlaup af sögu hvíts karls
sem er löngu dauður ásamt þrælum sínum.