MÁLSTOFA UM SÖFN OG HÁSKÓLASTARF

Boðað er til málstofu um þýðingu safna fyrir háskólastarf á Íslandi þann
5. desember kl. 15:00-17:00 í fundarsal Þjóðminjasafns Íslands.

Hvaða þýðingu hafa söfn fyrir háskóla landsins við upphaf 21. aldar að
mati sex safnstjóra, þeirra Hafþórs Ingvasonar á Listasafni Reykjavíkur,
Ólafar K. Sigurðardóttur í Hafnarborg, Bjarna Guðmundssonar
Landbúnaðarsafni Íslands, Unnar Birnu Karlsdóttur á Minjasafni
Austurlands, Hilmars Malmquist á Náttúruminjasafni Íslands og Önnu Lísu Rúnarsdóttur á Þjóðminjasafni Íslands?

Megin spurningar sem leitað verður svara við í málstofunni eru meðal
annars; með hafa hætti hafa söfn og háskólastofnanir átt í samstarfi á
undanförnum árum og áratugum, hvaða áskoranir standa söfn frammi fyrir í vaxandi háskólastarfi á sviðum þeirra, hvaða þýðingu hefur samvinna þeirra við háskóla fyrir íslenskt samfélag og með hvaða hætti sjá þeir samstarfið þróast á næstu árum.

Málstofan er öllum opin og aðgangur ókeypis.

Rannsóknasetur í safnafræðum við Háskóla Íslands boðar til málstofunnar í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands.