Ég á bara í smá erfiðleikum með þetta allt saman eftir Brynjar Jóhannesson

Mig langar til þess að öskra

þú þarna sem lest ljóð

mig langar til þess að öskra

 

en ég þori því ekki

ég þori ekki að trufla aðra með öskrum mínum

ég þori ekki að öskra því þá hugsa aðrir: Hvað er að honum eða: hvað er hann að pæla eða eitthvað allt annað sem mér dettur ekki einu sinni í hug.

 

Þú þarna sem lest ljóð

hvað ertu að meina með því?

 

Ég skil að ég lesi ljóð

ég skil ekki að þú lesir ljóð

(þú mátt samt alveg lesa ljóðin mín ég á bara í smá erfiðleikum með þetta allt saman)

 

Mig langar til þess að öskra

og hefur langað alveg síðan ég skrifaði reiðilegt ljóð (svona mest í gríni) um daginn

(ég sem er yfirleitt svo prúður)

 

Mig langar til þess að brjótast inn

í ókláraðan

steypuglersklump

og hlaupa og öskra og hlaupa og öskra og öskra og öskra og öskra og hlaupa og öskra

þar sem engin sér

og engin heyrir

 

Mig langar til þess að segja

eitthvað

það er þarna inni

(ég lofa)

en það er búið að stela öllum orðunum

 

Þeir eru búnir að stela öllum orðunum

Þær eru búnar að stela öllum orðunum

Þau eru búin að stela öllum orðunum

Hún er búin að stela öllum orðunum

Hann er búinn að stela öllum orðunum

Ég er búinn að stela öllum orðunum

Þú, sem lest ljóð (af hverju lestu ljóð?), ert búin að stela öllum orðunum.

 

Mig langar til að öskra en þótt ég þyrði því yrði það máttleysislegt

 

Þeir, þær, þau, hún, hann, ég og þú sennilega búin að stela öskrunum líka

 

Helvítis!

Helvítis andskoti að geta ekkert sagt

Helvítis andskoti að reyna samt

Helvítis andskoti að vera fastur í steypuglersklumpi

Helvítis andskoti að öskra og hlaupa og engin sér til

Helvítis andskoti að ýta og ýta og ekkert gefur undan

 

Helvítis andskoti.

 

reyna samt

öskra

ýta

 

gefur undan.

 

Ég þýfsteli munnöpum ög blaðurskraðökum

 

beygja

bogið

brotið

þanið.

 

Þeir, þær, þau, hann, hún, ég og þú höfum þanið sannleikann, beygt, brotið.

þanið.

 

I did not have sexual relations with that woman pólitískur ómöguleiki þjóðarsátt weapons of mass destruction hrægammasjóðir nató ég elska konur og allir vita að það er bara þannig við stöndum með þér frelsi frjáls frjáls frelsi frelsa frelsaður frjáls markaður frjálslyndi flokkurinn lýðræði pólitískur ómöguleiki lýðræðisvæðing lýðræði herstjórn lýðræði frjáls markaður málfrelsi smjörklípa. Leiftursnöggt. Hælisleitendur leiftursnöggt hælisleitendur minnisblað hælisleitendur þetta verður rannsakað þetta er í rannsókn smjörklípa róaðu þig ekki vera svona sár pólitískar krossfarir minnismiði guantanamo bay ég er bara að tala almennt.

 

Mig langar til þess að öskra

þú sem lest ljóð

Helvítis andskoti.