Tilkynnt um nýræktarstyrki MÍB

Plan B, Stálskip, Úlrika Jasmín og Kvíðasnillingarnir hljóta Nýræktarstyrki Miðstöðvar íslenskra bókmennta 2014

Miðstöð íslenskra bókmennta veitti í dag fjórum nýjum höfundum Nýræktarstyrki til útgáfu á verkum þeirra. Kristín Helga Gunnarsdóttir, nýr formaður Rithöfundasambands Íslands tilkynnti hverjir hlytu styrkina í ár í Gunnarshúsi, húsi Rithöfundasambands Íslands, kl. 16:00 í dag. Þetta er í sjöunda skiptið sem Nýræktarstyrkjum er úthlutað.

Nýræktarstyrkir eru sérstakir styrkir til útgáfu á nýjum íslenskum skáldskap. Styrkjunum er ætlað að styðja við útgáfu á fyrstu verkum nýrra höfunda og er þar átt við skáldverk í víðri merkingu þess orðs, sögur, ljóð, leikrit, eða eitthvað allt annað.

Í ár bárust 31 umsókn um Nýræktarstyrki frá 24 aðilum. Verkin sem sótt var um Nýræktarstyrk fyrir eru af ýmsum toga s.s. ljóð, barnaleikrit, smásögur, skáldsögur og esseyjur.

Nýræktarstyrki hljóta að þessu sinni eftirfarandi verk og höfundar:

Stálskip
Nokkur ævintýri
eftir Atla Sigþórsson
Útgefandi: Tunglið forlag, 2014.
Umsögn um verk og höfund:

„Eins og í gömlum ævintýrum er heimurinn sem hér birtist bæði myrkur og viðsjárverður. Sögur Atla eru í senn óhugnanlegar og heillandi, en ólíkt ævintýrum Grimmsbræðra gerast þær í nöturlegum nútíma og farsæl endalok sjaldan í sjónmáli. Formið er agað og knappur textinn ýmist ljóðrænn eða nístandi í hversdagsleika sínum.“

Plan B
Skáldsaga
eftir Guðrúnu Ingu Ragnarsdóttur
Umsögn um verk og höfund:

„Í ærslafullum leik að mörkum skáldskapar og veruleika segir höfundur kunnuglega sögu af skáldi sem virðist fátt annað kunna við ritstíflum daganna en Plan B, að skrifa einfaldlega um sitt eigið líf. Í skemmtilegri skáldsögu um skáldsögu sem aldrei var skrifuð fer saman næm athyglisgáfa, orðheppni og rík tilfinning fyrir hinu fáránlega.“

Kvíðasnillingarnir
Skáldsaga
eftir Sverri Norland
Umsögn um verk og höfund:

„Í sögu þriggja drengja, sem brátt verða unglingar og áður en varir karlmenn, dregur höfundur upp frumlega og fjöruga mynd af hlutskipti karla í samtíma sínum. Óvenjuleg stílgáfa helst í hendur við gráa íroníu og einlæga samkennd í heillandi sögu af leit mannsins að ástinni og vináttunni og glímu hans við kuldann og kvíðann.“

Úlrika Jasmín
Skáldsaga
eftir Uglu Egilsdóttur
Umsögn um verk og höfund:

„Í sjálfskipuðu fangelsi pólitískrar rétthugsunar og upphafinnar sjálfsmyndar er sjálfshjálparhópur orðinn sérfræðingur í að skapa vandamál. Í hugmyndaríkum og meinfyndnum prósa skekkir höfundur heiminn og skælir og sýnir lesendum hann í farsakenndum spéspegli sem engum hlífir – allra síst ungu kynslóðinni.“

Umsóknum um Nýræktarstyrki hefur fjölgað töluvert frá því að þeim var fyrst úthlutað úr Bókmenntasjóði árið 2008, en þá bárust 9 umsóknir og 5 styrkir veittir, hver að upphæð 200 þúsund, árið eftir, 2009, bárust 27 umsóknir og hlutu 6 styrki, árið 2010 bárust 39 umsóknir og voru 5 styrkir veittir og árið 2011 bárust 30 umsóknir um úthlutað 5 styrkjum. Árið 2012, bárust 23 umsóknir um aftur voru 5 styrkir veittir að upphæð 200.000 kr. Í fyrra bárust 49 umsóknir um Nýræktarstyrki og hlutu fjórir styrk að upphæð 250.000 kr.

Á meðal verka og höfunda sem hlotið hafa Nýræktarstyrki síðustu ár eru barnabókin Flugan sem stöðvaði stríðið eftir Bryndísi Björgvinsdóttur, skáldsagan Sláttur eftir Hildi Knútsdóttur, ljóðabókin Á milli okkar allt eftir Heiðrúnu Ólafsdóttur og smásagnasafnið Eldhafið yfir okkur eftir Dag Hjartarson.

Tvö verkanna sem fengu Nýræktarstyrki í fyrra eru komin út og hafa verkin og höfundar þeirra hlotið verðskuldaða athygli. Þetta eru: Vince Vaughn í skýjunum eftir Halldór Armand Ásgeirsson sem kom út hjá Máli og menning / Forlaginu haustið 2013, og Innvols eftir Bergþóru Einarsdóttur, Elínu Ösp Gísladóttur, Guðrúnu Heiði Ísaksdóttur, Herthu Richardt Úlfarsdóttur, Kötlu Ísaksdóttur, mao, Nönnu Hlé HallGvuðs, Selmu Leifsdóttur, Valdísi Björt Guðmundsdóttur og Þórunni Þórhallsdóttur. Kom út hjá Útúr haustið 2013.

Hér má finna frekari upplýsingar um Nýræktarstyrki Miðstöðvar íslenskra bókmennta: