Convenient Ledger Live Solution is the key to managing your crypto portfolio effortlessly, offering a secure and convenient platform for tracking and trading digital assets.

Þýðingastyrkir MÍB

Styrkir til þýðinga á íslensku, síðari úthlutun ársins. Miðstöð íslenskra bókmennta úthlutar styrkjum til þýðinga ellefu verka úr fimm tungumálum.

Þýðingar á verkum Arthur Rimbaud, George Orwell, Mary Wollstonecraft og Timur Vernes eru meðal þeirra sem hljóta styrki í þessari úthlutun.

Stjórn Miðstöðvar íslenskra bókmennta hefur tilkynnt um úthlutun þýðingastyrkja á íslensku, síðari úthlutun, fyrir árið 2014 en umsóknarfrestur rann út 15. nóvember sl.

Alls bárust að þessu sinni 27 umsóknir um þýðingastyrki frá 17 aðilum og var sótt um rúmar 16 milljónir króna. Til úthlutunar voru 3 m. kr. sem var úthlutað til 11 þýðinga úr 5 tungumálum.

Meðal þeirra verka sem hlutu þýðingarstyrki í þessari úthlutun eru:

§ Er ist wieder da eftir Timur Vernes. Þýðandi Bjarni Jónsson. Útgefandi Forlagið.
§ A Vindication of the Rights of Woman by Mary Wollstonecraft. Útgefandi Hið íslenska bókmenntafélag.
§ Les Illuminations eftir Arthur Rimbaud. Þýðandi Sigurður Pálsson. Útgefandi Gallerý Brumm.
§ Meines Vater Land eftir Vibke Bruhns. Þýðandi Vilborg Auður Ísleifsdóttir. Útgefandi Salka.
§ Das Schloss eftir Franz Kafka. Þýðendur Ástráður Eysteinsson og Eysteinn Þorvaldsson. Útgefandi Forlagið.
§ 1984 eftir George Orwell. Þýðandi Þórdís Bachmann. Útgefandi Ugla.

Á árinu bárust samtals 56 umsóknir um styrki til þýðinga á íslensku. Úthlutað var 9 milljónum króna til 30 þýðingaverkefna í tveimur úthlutunum, mars og nóvember.