Ljóðstafur Jóns úr Vör

Lista- og menningarráð Kópavogsbæjar efnir í fjórtánda sinn til árlegrar ljóðasamkeppni undir heitinu Ljóðstafur Jóns úr Vör. Veitt verða vegleg verðlaun og fær verðlaunaskáldið auk þess til varðveislu, í eitt ár, göngustaf áletraðan með nafni sínu.

Dómnefnd velur úr þeim ljóðum sem berast. Öllum skáldum er velkomið að senda ljóð í keppnina en skilafrestur rennur út 21. desember. Ljóðum skal skilað með dulnefni. Nafn, heimilisfang og símanúmer skáldsins skal fylgja með í lokuðu umslagi, sem auðkennt er með sama dulnefni.

Ljóðin mega ekki hafa birst áður. Einungis má senda inn eitt ljóð.

Utanáskrift er: Ljóðstafur Jóns úr Vör,
Listhús Kópavogsbæjar
Fannborg 2,
200 Kópavogur.

Greint verður frá niðurstöðum samkeppninnar og verðlaun veitt á afmælisdegi Jóns úr Vör 21. janúar 2015. Jón úr Vör bjó nánast allan sinn starfsaldur í Kópavogi en tilgangur keppninnar er að efla og vekja áhuga á íslenskri ljóðlist.