Úr Neytendalögunum eftir Idu Börjel

 

Verð

10a § Vara verður að kosta eitthvað á einhverju
stigi framleiðsluferlisins. Hún má ekki kosta
ekki neitt og verð hennar má ekki vera óendanlega
hátt.

Seljandinn á að geta svarað spurningum.

 

Seinkanir

18a § Valkvíði.

18b § Skyndileg fátækt.

18c § Ást við fyrstu sýn.

 

Villa þegar kemur að frelsi (í stuttu máli)

48 § Andinn býr í holdinu. Andann hungrar í sitt.

                             Seljandinn: Elskarðu mig?
                             Kaupandinn: Ekki þessa bíræfni.

 

Þýðing: EÖN

Nýjasta bók Idu heitir Miximum Ca Canny Sabotagemanualerna; you cutta da pay, we cutta da shob.