Uppsprettan lýsir eftir handritum

Uppsprettan er nýtt fyrirbæri í íslensku leiklistarlífi og er einskonar pop-up leikhús. Uppsprettan N°3 verður haldin í Tjarnarbíói 22. september n.k. og núna erum við að auglýsa eftir handritum og því sendum við ykkur þennan tölvupóst og biðjum ykkur endilega um að áframsenda á félaga ykkar.

Uppsprettan auglýsir eftir handritum.

Við hjá Uppsprettunni erum að leita eftir handritum sem aldrei hafa verið flutt á sviði áður. Þau mega vera mest 8 blaðsíður að lengd, eða 8 blaðsíðna heilsteypt atriði. Því miður eru einleikir ekki leyfðir og hver höfundur má einungis senda inn eitt handrit. Engar aðrar kröfur eru gerðar.

Búið er að mynda nefnd af reyndu leikhúsfólki sem mun lesa handritin og velja svo úr þau þrjú handrit sem þeim þykir best, sem verða þá sett upp af Uppsprettunni í Tjarnarbíói þann 22. september næstkomandi. Handritin verða send til nefndarinnar án þess að höfundar verði nafngreindir, en hinsvegar verða höfundar verkanna þriggja, sem valin verða, nafngreindir á sýningarkvöldinu og á fésbókarsíðu Uppsprettunnar.

Leikstjórarnir fá handritin í hendurnar u.þ.b. sólarhring fyrir frumflutning, og fá þá einnig að vita hvaða rými þeir eru að vinna með og hvaða leikhóp. Þeir hafa svo daginn til að hanna uppsetninguna og finna til props, búninga eða hvað sem þeir vilja, og leysa út úr þeim áskorunum sem felast í handritinu, rýminu og/eða leikhópnum. Leikararnir fá handritin einnig í hendurnar sólarhring fyrir.

Um kvöldið, eða þremur klukkutímum fyrir frumflutning, fá leikstjórarnir svo að byrja að vinna með leikurunum í æfingarými sem verður opið fyrir gesti og gangandi til að fylgjast með.

Þremur tímum seinna er svo útkoman sýnd og er ótrúlegt að verða vitni að því sem leysist úr læðingi.

Þannig ef þú hefur áhuga, endilega sendu inn handrit. Skilafrestur er til miðnættis 4. september næstkomandi.

Handrit sendist á spretturupp@gmail.com

Meiri upplýsingar finnast á Fésbókarsíðu verkefnisins – https://www.facebook.com/pages/Uppsprettan/494644333926281

Með bestu kveðjum,

Jenný Lára Arnórsdóttir og Ingi Hrafn Hilmarsson
Listrænir stjórnendur Uppsprettunnar.