Skáldskapurinn í sagnfræðinni og sagnfræðin í skáldskapnum

Í kvöld, miðvikudaginn 7. maí, kl. 20:00 munu útgáfufélagið Meðgönguljóð og sögubloggið Smjörfjall sögunnar standa fyrir pallborðsumræðum um sagnfræði og skáldskap á Loft Hostel við Austurstræti.

Þátttakendur eru Hallgrímur Helgason, rithöfundur, Sigrún Pálsdóttir, rithöfundur, Sigrún Alba Sigurðardóttir, menningarfræðingur og lektor við Listaháskóla Íslands, og Sjón, rithöfundur. Í pallborðinu verða könnuð mörk skáldskapar og sagnfræði. Hvað geta sagnfræðingar og rithöfundar lært af og stolið frá hver öðrum? Kári Tulinius, rithöfundur, og Kristín Svava Tómasdóttir, sagnfræðingur og ljóðskáld, stýra umræðum.