Menningarverðlaun DV – tilnefningar

Menningarverðlaun DV verða veitt í 35. skipti þann 11. mars næstkomandi og fylgir blaðinu í dag aukakálfur með kynningu á tilnefndum listamönnum. Tilnefnt er fyrir tónlist, leiklist, kvikmyndalist, bókmenntir, danslist, fræði, arkítektúr, myndlist og hönnun, en auk þess eru veitt verðlaunin Val lesenda, þar sem valið er úr tilnefningum á dv.is, og heiðursverðlaun sem forseti Íslands veitir. Forvitni vekur að í ár er sami aðili tilnefndur í tveimur ólíkum flokkum – fyrir sama verk. Hægt er að kynna sér tilnefningarnar hér (pdf-hlekkur).