Kápumyndin er eftir Steinunni Gunnlaugsdóttur.

Lengist í taumnum eftir Snorra Pál Jónsson Úlfhildarson

Útgáfuneindin WHEEL OF WORK kynnir, með látum og meðlæti, ljóðabókina LENGIST Í TAUMNUM eftir Snorra Pál Jónsson Úlfhildarson. Fagna má gripnum og fanga hann mánudaginn 20. október nk. klukkan 17:00 í galleríinu Ekkisens, Bergstaðastræti 25b, 101 Reykjavík. Í boði verða ljóð og aðrar veitingar.

Um bókina

Í bókinni má meðal annars rekast á hagrænan skapara og skepnur hans; nýborinn frelsara og framsækin fyrirheit hans; höggþungar hendur og þrúgandi faðm hinnar móðurlegu algæsku; súrsætan óttann við óeirðir, bragðbeiska upplausn og vatnsblandaðar hamfarir; síendursköpuð hnitakerfi, sparslaðar höggmyndir; manngerðan þurrkinn og guðdómlegt úrhellið; króníska skekkjuleiðréttingaráráttu; bót allra meinsemda, djassinn — hóstasaft hinna kokþröngu, ópíum hinna angistarfullu; brauðmylsnuslóðann sem mávarnir nenna ekki að afmynda; ítrekað átraðkaðan maðkinn; okkur, þá fánýtu fleirtölu; og þéttfléttaðan tauminn sem sitt á hvað styttist og lengist — en slitnar aldrei.

Um höfund

Snorri Páll fæddist árið 1987 og tórir enn. LENGIST Í TAUMNUM er hans fyrsta ljóðabók. Hann hefur fengist við hitt og þetta: ástundað (and)pólitískan prakkaraskap, samið og flutt tónlist, framið gjörninga, staðið að útgáfu tímarita, birt greinar og ljóð í bókmenntatímaritum, og verið óreglulegur pistlahöfundur götublaðsins Reykjavík Grapevine. Í september og október sl. stóð hann, ásamt Steinunni Gunnlaugsdóttur, að halarófu verka víðsvegar um Reykjavík undir titlinum EF TIL VILL SEK. Þar frumsýndi hann stuttmyndina MAÐUR BÍÐUR og framdi þriggja þátta gjörninginn ANNAÐ FÓLK auk þess að taka þátt í stofnun MÁF/VAVINAFÉLAGSINS. Síðustu árin hefur hann helst dvalist í borgum sem byrja á B.

Um fáanleika

Í þessum skrifuðu orðum er bókin fáanleg beint frá býli höfundar og í Bókabúð Máls og Menningar, en verður í fleiri verslunum — hefðbundnum sem óhefðbundnum — þegar á líður