Í dag, laugardaginn 22. mars kl. 17 opnar sýning á nýjum verkum eftir Emmu Heiðarsdóttur, Ingibjörgu Sigurjónsdóttur, Loja Höskuldsson, Margréti Helgu Sesseljudóttur og Sigurð Ámundason í Kling & Bang gallerí. Í texta sem Ragnar Kjartansson skrifar í tilefni sýningarinnar segir meðal annars: „Kling & Bang hefur framreitt hlaðborð af nýjustu straumum í myndlist bæjarins. […] Á þessum tímum vonleysis, máttleysis og laskaðrar réttlætiskenndar sjáum við verk sem vinna með fagurfæði á einhvern dularfullan hátt. Rýmiskennd, innri ólgu, endalausan einmannaleika og þrá. Þessir listamenn skapa verk sem fylla okkur samtímis af von og vonleysi. Kynslóðin í tóminu.“