Endurbókun – Sýning á bókverkum í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi

Sjö listakonur sýna nú fjölbreytt bókverk unnin úr gömlum bókum undir yfirskriftinni Endurbókun í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Bókverk er samheiti yfir listaverk sem tengjast á einhvern hátt bókinni sem formi og hugtaki. Fjölbreytni bókverka er óendanleg enda hugmyndaflug listamannsins eina takmörkunin. Bókverk geta verið fjölfölduð eða einstæð, aðeins til í einu eintaki, með augljósu yfirbragði handverksins eins og mörg verkanna á sýningunni Endurbókun. Aðferðirnar sem notaðar eru við sköpunina eru margvíslegar; pappírsbrot, klippitækni og skurður, textílaðferðir, málun og teikning og þrykkaðferðir svo nokkuð sé nefnt.

Öll verkin á sýningunni eiga það sameiginlegt að vera unnin úr gömlum bókum. Flestar þeirra voru fengnar hjá Gerðubergssafni, en bókasöfn afskrifa árlega nokkurn fjölda bóka til frekari útlána. Þessar gömlu bækur, sem lokið hafa hlutverki sínu, hafa öðlast nýtt líf í einstæðum listaverkum.
Sýnendurnir eru allar hluti af listakvennahópurinn ARKIR sem hittist reglulega til að bera saman bækur sínar en meðlimir hafa um margra ára skeið stundað bókverkagerð af ýmsum toga. Listakonurnar sinna öllu jafna fjölbreyttri listsköpun á sviði málara- og grafíklistar, textíllistar, ritlistar, myndlýsinga og hönnunar en eiga það sameiginlegt að hrífast af bókverkum.

Sýningin stendur til 11. janúar 2015 og er opin virka daga frá 8-18 og frá 13-16 um helgar.
Sýningarstjóri er Kristín Þóra Guðbjartsdóttir. Sjá nánar á heimasíðu Gerðubergs www.gerduberg.is
Eftirtaldar listakonur eiga verk á sýningunni:

Anna Snædís Sigmarsdóttir
Arnþrúður Ösp Karlsdóttir
Áslaug Jónsdóttir
Ingiríður Óðinsdóttir
Svanborg Matthíasdóttir
Sigurborg Stefánsdóttir
Kristín Þóra Guðbjartsdóttir