Þótt þegar séu liðin fáein prósent af árinu 2015 langar mig að birta hérna örlitla (kannski, kemur í ljós) lestrarskýrslu fyrir árið 2014. Þetta kemur ekki síst til af þeirri staðreynd að síðastliðið ár var árið þar sem ég hysjaði upp um mig buxurnar sem lesandi og tók á sprett á nýjan leik sem viljugur lestrarhestur.
Ég hafði sumsé orðið latur lesandi og ákvað að gera eitthvað í málunum. Hvað gerði ég? Ég nýtti tæknina og sítenginguna sem öpp og alltumlykjandi nettengingar bjóða upp á. Á sáraeinfaldan hátt.
Ég útbjó skjal í Word og nefndi það LESLISTI 2014. Skjalið setti ég í rótina á Dropbox-möppunni minn og svo hlóð ég niður samnefndu appi í minn takmarkaða LG-snjallsíma. Þetta gerði að verkum að alltaf þegar mér datt í hug gat ég uppfært eftirtaldar þrjár tegundir upplýsinga um lesturinn:
LESNAR BÆKUR
HÁLFLESNAR BÆKUR
NÆSTAR Á DAGSKRÁ
Þetta var hin „mikla“ bylting. Aðrar leiðir eru vitanlega færar, t.d. hef ég verið fræddur um að á síðunni Good Reads sé þetta allt saman gert og meira til (stjörnugjöf og ábendingar). Enn önnur leið væri enn einfaldari, sérstaklega fyrir ötula samfélagsmiðlendur: Að búa til eins og eina glósu á Facebook og vista hana sem uppkast.
Lykilatriðin eru eiginlega bara tvö: Leslistinn þarf að vera aðgengilegur, öllum stundum, og hann þarf að vera nógu einfaldur til að þú notir hann.
„Af hverju ætti ég að standa í þessu?“ Þannig gætirðu spurt. Og svarið er: „Vegna þess að það skiptir máli að halda takti, líka sem lesandi. Það skiptir máli hvaða bók maður les næst. Og líka vegna þess að maður man ekki nokkurn skapaðan hlut stundinni lengur, ekki einu sinni eftir áhugaverðum bókum.“
Niðurstaðan varð sú að árið 2014 las ég miklu meira en áður, en það besta var samt að ég fann aftur lestrarþorstann og þörfina til að lesa eitthvað á hverjum einasta degi.
Ég varð aftur virkur lesandi – innan frá.
***
Neðst í pistlinum er að finna lista yfir allar bækurnar sem ég las árið 2014, nokkurn veginn í réttri röð, en þær urðu 36 talsins. Til að taka þetta örlítið saman eru hér nokkrir verðlaunastimplar – til gamans:
BÓK ÁRSINS: Hjarðljóð úr Vesturbænum eftir Svein Yngva Egilsson
NÝLIÐAR ÁRSINS: Herman Koch og Halldór Armand (Vince Vaughn í skýjunum)
VONBRIGÐI ÁRSINS: Sannleikurinn um mál Harrys Quebert og Colorless Tsukuru Tazaki and His Years of Pilgrimage
ENDURUPPGÖTVUN ÁRSINS: Þrjár eldri skáldsögur eftir Paul Auster, Invisible, Brooklyn Follies og Oracle Night
Og hvernig byrjaði svo árið 2015? Jú, nefnilega þannig að ég fékk lánaða Karitas – án titils eftir Kristínu Marju (hún hefur lengi verið næst á dagskrá). Bókin sú er feiknarvel skrifuð og togar allrækilega í mann … en af mjög sérstökum ástæðum framlánaði ég hana (!) og tók því niður úr hillunni bókina All Families Are Psychotic eftir Douglas Coupland.
Hún lofar svo sannarlega góðu.
Rétt eins og lestrarárið 2015 lofar góðu, því þar er ég harðákveðinn í að lesa fleiri en þrjátíu og sex bækur.
***
LESNAR BÆKUR ÁRIÐ 2014
- Fiskarnir hafa enga fætur – Jón Kalman
- Sigrún og Friðgeir – Sigrún Pálsdóttir
- Kära Agnes – Håkan Nesser
- Illska – Eiríkur Örn
- Tilvistarstefnan er mannhyggja – Sartre
- Vince Vaughn í skýjunum – Halldór Armand Ásgeirsson
- Sumarhús með sundlaug – Herman Koch
- Haruki Murakami and the Music of words – Jay Rubin
- Bréfberinn – Antonio Skármeta
- Kvöldverðurinn – Herman Koch
- Ég heiti Aram – William Saroyan
- Náttúruleg skáldsaga – Georgi Gospodinov
- Wild Sheep Chase – Haruki Murakami
- Sannleikurinn um mál Harrys Quebert – Joel Dicker
- The Empty Space – Geetanjali Shree
- Suðurglugginn – Gyrðir Elíasson
- Colorless Tsukuru Tazaki and His Years of Pilgrimage – Haruki Murakami
- Endurkoma Maríu – Bjarni Bjarnason
- Bónusstelpan – Ragna Sigurðardóttur
- Gefið hvort öðru … – Svava Jakbosdóttir
- Andlit – Bjarni Bjarnason
- Jójó – Steinunn Sigurðardóttir
- H h h h – Laurent Binet
- Glæpurinn – Árni Þórarinsson
- Flugur – Jón Thoroddsen
- Mánadúfur – Einar Ólafsson
- Snjóblinda – Ragnar Jónasson
- Styttri ferðir – Ýmsir höfundar
- Hjarðljóð úr Vesturbænum – Sveinn Yngvi Egilsson
- Pippi Langstrump – Astrid Lindgren
- Smásögur – Svava Jakobsdóttir
- Flugan sem stöðvaði stríðið – Bryndís Björgvinsdóttir
- Leið – Heiðrún Ólafsdóttir
- Invisible Auster – Paul Auster
- Brooklyn Follies – Paul Auster
- Oracle Night – Paul Auster